Síðasta lag God Help the Girl
by Pétur Valsson on júní 18, 2010
Belle and Sebastian hliðarverkefnið God Help the Girl gaf út fína plötu fyrir um ári síðan þar sem Stuart Murdoch fékk nokkrar söngkonur til liðs við sig. Fyrir stuttu kom svo út ný smáskífa frá verkefninu með laginu „Baby You’re Blind“ en það er söngkonan Linnea Jönsson úr sænsku hljómsveitinni Those Dancing Days sem syngur. Samkvæmt Rough Trade útgáfunni var þetta síðasta lagið (í bili amk) sem tekið var upp undir merki God Help the Girl og nú er bara spurning hvort ekki fari að hilla undir nýja B&S plötu…?
God Help the Girl – Baby You’re Blind
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína