Eitt og annað úr póstkassanum
by Egill Harðar on júní 22, 2010
Þá er komið að okkar reglulega lið að athuga hvað leynist í pósthólfi Rjómans. Okkur berast reglulega innsendingar erlendis frá sem vert er að birta og oftar en ekki leynast sannir gullmolar inn á milli. Við skulum sjá hvað kom upp úr krafsinu í þetta skiptið.
Twilite – Fire
Pólskt band sem segist undir áhrifum frá Bon Iver, Kings Of Convenience og Jose Gonzalez. Mjög áheyrileg og ljúf tónlist í alla staði. Voru að gefa út EP plötuna Else en á henni fannst mér lagið „Fire“ einna best. Áhugasamir geta nálgast plötuna á Bandcamp vef sveitarinnar : http://twilite.bandcamp.com
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
ProF – Day Scheming
Cheldon Paterson, betur þekktur sem ProF, sendi nýverið frá sér sína fyrstu sólóplötu sem hann kallar The Door -Lost World. Hér er á ferð ágætis instrumental hip-hop með allskonar tilvitnunum úr heimi rafrænnar tónlistar.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tvö massív DJ set bárust Rjómanum frá hinum hýperaktívu og ofurhressu Buffetlibre plötusnúðum. Kallast hið fyrra „Atlas“ á meðan seinna mixið, sem er tribjút til EdBanger, heitir að sjálfsögðu „Edbangerism“. Meðal listamanna sem eiga lög þarna eru Björk, Editors, Justice, Klaxons, Mr. Oizo og Happy Mondays. Nú munu hlaunir skakast!
Buffetlibre – Atlas
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Buffetlibre – EdBangerism
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína