Það er laugardagur, úti er þriggja flösku veður og skaðræðis grillfæri og löglegum bjórtíma hefur verið flýtt fram um allt að 3-4 stundir. Til að gefa þeim sem ekki kunna að meta fagra tóna vuvuzela flautunnar býður Rjóminn í tilefni dagsins þessa gildu og útblásnu laugardagsblöndu sem inniheldur mestmegnis allskonar, eins og móðins þykir nú að segja.
Julius C – Don’t Want Anybody
Af plötunni OK.OK. sem kom þann 10. þessa mánaðar.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Make Up Break Up – Wow!
A plötunni Scents sem kemur út 31. ágúst næstkomandi.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Jennifer Lo-Fi – Instrumental
Brasilíkst frammúrstefnu indie sem minnir pínulítið á Mammút. Lagið er tekið af Bandcamp síðu sveitarinnar.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Pete Lawrie – All That We Keep (Don Diablo Remix)
Nýjasta smáskífa Pete Lawrie fær andlitsliftingu í boði Don Diablo. Aðgerðin heppnast fullkomlega.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Don Diablo – Whos your daddy (A Skillz Remix)
Það er jú laugardagur og einhverjir ætla sér að skaka hlunum í kvöld. Hér er áframhaldandi góðgæti í boði Don Diablo til að koma fólki í stuð.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
King Knight – Salem
Fyrst maður er kominn í dansgírinn þá verður þessi mikli hittari að fylgja með en hann er með þeim vinsælli í bloggheimum um þessar mundir. Gott ef það er ekki „Oh, Holy Night“ sem maður heyrir samplað þarna í bakgrunni?
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
LCD Soundsystem – You Wanted A Hit (Soulwax Remix)
Það er náttúrulega ekki annað hægt en að láta þessa snillinga fljóta með. Hér eru þeir endurblandaðir af jafnvel enn meiri snillingum.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Focus – Hocus Pocus (Buffetlibre Remix)
Í lokin er það svo þekktasti smellur hollensku prog-rokk sveitarinnar Focus, sem kom út 1971, sem fær ævintýranlega meðferð hjá hlaðborðsfrelsis skífuþeytunum góðu.