Glen Hansard verður að Hamragörðum
by Rjóminn on júní 28, 2010
Tónlistarmaðurinn Glen Hansard hefur bæst við live dagskrána að Hamragörðum. Glen er forsprakki hljómsveitana The Frames og The Swell Season sem hlaut Óskarsverðlaunin 2008 fyrir besta lag í kvikmynd. Lagið heitir „Fallen Slowly“ og er úr myndinni Once.

Til að koma í veg fyrir misskilning þá verða Hjaltalín, Gus Gus, Retro Stefson og For a Minor Reflection ekki live að Hamragörðum heldur koma þau fram í netútsendingunni á www.indspiredbyiceland.com í innslögum sem hafa verið tekin upp fyrirfram síðustu daga.
Þessum innslögum verður skeytt inn í netútsendinguna frá Hamragörðum en vert er að taka það fram aftur að þessar hljómsveitir verða ekki live að Hamragörðum enda uppteknar við annað þetta kveld og því þeirra aðkoma að viðburðinum leyst með fyrirframuppteknum innskotum fyrir netútsendinguna.
The Swell Season – Fallen Slowly
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína