of Montreal með nýtt lag
by Pétur Valsson on júní 28, 2010
Um miðjan september kemur platan False Priest út en hún er nýjasta afurð of Montreal. Ef hljómsveitin heldur áfram á þeirri slóð sem hún hefur fetað á undanförnum árum ætti platan að verða hin fjölbreyttilegasta sýrupoppsveisla. Umslag skífunnar rennir frekari stoðum undir þá kenningu. of Montreal fær tvær gestasöngkonur í heimsókn á plötunni, en þær Janelle Monáe og Solange Knowles (systir Beyoncé) ljá nokkrum lögum raddir sínar og verður útkoman vonandi forvitnileg. Fyrsta smáskífan af False Priest heitir „Coquet Coquette“ og hljómar svona:
of Montreal – Coquet Coquette
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína