Sódóma um helgina

by Rjóminn on júlí 2, 2010

Pearl Jam Tribute í kvöld
Tónleikar til heiðurs bandarísku rokksveitinni Pearl Jam verða haldnir í kvöld, föstudaginn 2. júlí á Sódóma Reykjavík. Leikin verða lög af nánast öllum plötum sveitarinnar ásamt lögum sem hafa ratað í kvikmyndir. Pearl Jam á farsælan feril að baki og hefur verið leiðandi rokksveit frá upphafsárum sínum í grugginu, en sveitin er enn í fullu fjöri í dag. Hljómsveitina skipa Magni Ásgeirsson, Franz Gunnarsson, Haraldur V Sveinbjörnsson, Stefán Ingimar Þórhallsson og Birgir Kárason

Húsið opnar: 23:00 og hefjast tónleikarnir á miðnætti. Miðaverð er 1000 kr.

Viðburðurinn á Facebook

Pearl Jam – Even Flow

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Mínus og Agent Fresco annað kvöld.
Hljómsveitirnar Mínus og Agent Fresco munu spila saman á Sódóma annað kvöld. Báðar sveitirnar eru að vinna að væntanlegum breiðskífum sínum og munu því tónlistaráhugamenn fá að heyra það allra nýjasta í bland við það eldra.

Húsið opnar klukkan 23:00 og er miðaverð aðeins 500kr.

Agent Fresco – Eyes of a Cloud Catcher

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Pearl Jam heiðruð á Sódóma í kvöld
  2. Dagskrá helgarinnar á Sódóma
  3. Styrktartónleikar Agent Fresco
  4. Agent Fresco vinnur að nýrri plötu
  5. Mikill fjöldi tónleika um helgina

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.