Moses Hightower og Seabear í Havarí

by Rjóminn on júlí 7, 2010

Í dag, miðvikudag, kemur hljómsveitin Moses Hightower í heimsókn í Havarí, Austurstræti 6, og leikur af sinni alkunnu snilld nokkur lög af nýútkominni hljómplötu, Búum til börn. Plötunni hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu, af hérlendum unnendum sykurpabbatónlistar, síðan sveitin fór að koma fram með sitt eigið efni árið 2007. Hvort sem þú ert sæt eða súr skaltu ekki missa af þessum tónleikum.

Það eru ekki minni spámenn sem heimsækja Havarí á fimmtudaginn en það er hljómsveitin Seabear. Hljómsveitin sú er, eins og margir hafa tekið eftir, að verða ein af stórskotasveitum íslenskrar tónlistarsenu enda hefur hróður hennar nú borist um heim allan og rekið aftur inn á Íslandsstrendur. Seabear gaf út hina frábæru plötu We Built a Fire í byrjun þessa árs og mun leika lög af henni í bland við eldra efni í Havarí á fimmtudaginn.

Tónleikarnir í Havarí byrja klukkan 17.00 á miðvikudag og fimmtudag og allt friðelskandi fólk um fantagóða tóna er hjartanlega velkomið án endurgjalds. Tónleikarnir eru hluti af sumartónleikaseríu Havarí og Reykjavíkurborgar.

Moses Hightower – Vandratað

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Seabear – I sing I swim

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Glímuskjálfti í Moses Hightower
  2. Valdimar og Moses Hightower spila í Slippsalnum í kvöld
  3. Búum til börn með Moses Hightower
  4. Miðnæturtónleikar Seabear á Menningarnótt
  5. Síðasta sumargigg Moses Hightower

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.