Listahátíðin LungA

by Rjóminn on júlí 15, 2010

Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fagnar tíu ára afmæli sínu með einstaklega glæsilegri tónlistardagskrá á hátíðinni í ár. Tónlistardagskráin nær hápunkti sínum á afmælistónleikum laugardaginn 17. júlí þegar miðbæjarsvæði Seyðisfjarðar verður breytt í eitt samfellt hátíðarsvæði þar sem tvö útisvið verða með stanslausa tónlist allan daginn fram til klukkan 01.00. Á tónleikunum koma fram Hjaltalín, Seabear, Retro Stefson, Bloodgroup ásamt strengjasveit og fleiri.

LungA – Listahátíð ungs fólks, Austurlandi hófst mánudaginn 12. júlí og stendur fram til sunnudagsins 18. júlí. Á boðstólum hátíðarinnar eru fjöldi listasmiðja og listasýninga, fatahönnunarsýning, fyrirlestrar, tónleikar og fleiri viðburðir.

LungA var fyst haldin árið 2000 og að því tilefni er aðgangseyrir á tónleikana aðeins 2.000 krónur. Aðstandendum LungA er mikil ánægja að tilkynna að 15 ára og yngri fá aðgang í fylgd með fullorðnum – og fólk 50 ára og eldra fær frítt inn á tónleikana – og hvetur alla fjölskylduna til að mæta og njóta frábærrar tónlistar saman!

Kraumur tónlistarsjóður er samstarfsaðili tónleikadagskrárinnar og styður sérstaklega upptökur á afmælistónleiknum. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Hjaltalín – Stay By You

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Bloodgroup – My Arms

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. LungA hefst mánudaginn 11. júlí
  2. Listahátíðin Jónsvaka nálgast
  3. Hjálmar á þönum
  4. Fyrsta lag Krónu gefið út á Þjóðhátíðardaginn
  5. Tónlistarkonur leggja land undir fót

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.