All Smiles gefa plötu
by Pétur Valsson on júlí 16, 2010
Nokkur ár eru liðin síðan hin fína hljómsveit Grandaddy lagði upp laupana. Gítarleikari sveitarinnar, Jim Fairchild, er nú genginn til liðs við Modest Mouse en í stundum milli stríða sinnir hann sólóverkefninu All Smiles. Undir því nafni hafa komið út tvær plötur sem Fairchild hefur unnið sjálfur eða með vinum, en yfirleitt er trommarinn Joe Plummer úr Modest Mouse og The Black Heart Procession með í för. Nýjasta afurð All Smiles heitir Oh For The Getting And Not Letting Go og kom út á síðasta ári, en Farichild hefur ákveðið að gefa plötuna frítt á netinu í sumar og má hala henni niður á heimasíðu All Smiles. Platan er hin áheyrilegasta og því um að gera að nýta sér tækifærið og ná í smá ókeypis gæðamúsík…
All Smiles – Foxes In The Furnace
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Engar tengdar færslur.


Segðu skoðun þína