Wolf People
by Egill Harðar on ágúst 20, 2010
Þær eru fáar hljómsveitirnar nú til dags sem bera þess greinilega merki að vera undir áhrifum frá Jethro Tull. Sjaldgæfara er að slík sveit skuli leggja sig fram við að hljóma líkt og Tull gerði á upphafi feril síns. Wolf People er eins slík sveit en þessi ágæti kvartett frá London mun senda frá sér plötuna Steeple þann 12. október næstkomandi. Á henni er að finna meðfylgjandi lag sem vekur óneitanlega upp minningar um laxabóndann þverflautandi og félaga. Þessa plötu verð ég að eignast!
Wolf People – Tiny Circle
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína