Miðar á Airwaves seljast eins og heitar lummur!
by Rjóminn on ágúst 30, 2010
Miðasala á Iceland Airwaves 2010 hefur gengið með afbrigðum vel og nú eru um 3500 miðar seldir á hátíðina. Tilboðið „Early Bird “ hefur slegið í gegn og aldrei hafa fleiri miðar selst svo snemma í forsölu.
Þann 1. september næstkomandi hækkar miðaverð í 14.900 krónur en enn má gera kostakaup og fá miða á 13.500 krónur eða á 9.900 krónur með því að vera meðlimur í Vildarklúbbi Icelandair. Þess ber að geta að aðeins eru um 1500 miðar óseldir á hátíðina sem fram fer 13. – 17. október.
Oh No Ono – Swim
Í vikunni verður tilkynnt um fleiri listamenn sem koma fram á Airwaves í ár, bæði innlenda og erlenda en þegar hafa yfir 200 atriði verið bókuð og þar af eru 70 erlendir listamenn og hljómsveitir. Allt stefnir í óvenju glæsilega hátíð í ár sem engir alvöru tónlistarunnendur ættu að láta fram hjá sér fara.
Kaupa miða: http://midi.is/tonleikar/1/5986
Ný heimasíða hátíðarinnar: http://www.icelandairwaves.is
Facebook: http://www.facebook.com/icelandairwavesfestival
Twitter: http://twitter.com/icelandairwaves
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína