Ókindin snýr aftur

Laugardaginn 4. september verður rokksveitin Ókind særð upp úr gröfinni til að leika í eina kvöldstund á Faktorý. Húsið mun opna kl. 22:00. Söngvaskáldið Jón Þór (Lödu Sport, Dynamo Fog) sér um upphitun og hefur leik kl. 23:00. Það verður ókeypis inn og platan Hvar í Hvergilandi til sölu á hlægilegu verði.

Ókind spratt fullsköpuð fram árið 2002 – út úr daunillu hesthúsi á Heimsenda og beint í annað sæti Músíktilrauna. Á næstu fjórum árum gaf hún út plöturnar Heimsenda 18 og Hvar í Hvergilandi, sem báðar hlutu náð fyrir augum og eyrum gagnrýnenda. Haustið 2006 tilkynnti Ókind að nú væri þetta orðið gott í bili. Svo þagnaði hún í fjögur ár.

Meðlimirnir hafa flestir verið viðloðandi tónlist síðan: Gítarleikarinn Ingi Einar er tónleikaljósamaður, bassaleikarinn Birgir Örn upptökustjóri, og söngvarinn og hljómborðsleikarinn Steingrímur hefur m.a. starfað í hljómsveitunum Moses Hightower, Ojba Rasta og Stórsveit Samúels J. Samúelssonar. Trommarinn Ólafur Freyr er lögmaður sem hlustar gjarnan á góða tónlist um helgar.

Ókind er ekki byrjuð aftur. Hér er bara um einnar nætur gaman að ræða. Tveimur dögum eftir tónleikana flytur Ingi Einar til London ásamt unnustu sinni og verður þar lengi, lengi. Kannski kemur hljómsveitin saman aftur seinna. Kannski ekki.

Ókind – Ó Ég

Tengdar færslur:

  1. Ókindin snýr aftur
  2. Ég snýr aftur!
  3. Datarock snýr aftur!
  4. Aftur og Aftur með Sigga Lauf
  5. Trumans Water snýr aftur

Leave a Reply

Connect with Facebook