Ólafur Arnalds í Havarí

Havarí kynnir Ólaf Arnalds næstan á svið – laugardaginn 4. september klukkan 16.00.

Ólaf hefur oft borið á góma í Havarí í sumar og hafa tónar hans ómað ótt og títt út um hátalarakerfið. Mest hefur nýja platan hans „… and they have escaped the weight of darkness„, sem kom út í apríl, verið spiluð. Ólafur á stóran og stæðilegan aðdáendahóp sem tók mikinn vaxtarkipp eftir að hann túraði með Sigur Rós 2008. Það er enn á huldu hverjir spila með Ólafi á laugardaginn en eina sem vitað er  er að húsráðendur þurfa að redda honum sex stólum.

Ólafur Arnalds – Ljósið (Official Music Video) from Erased Tapes on Vimeo.

Ólafur Arnalds – Þú Ert Sólin

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Þú ert Sólin með Ólafi Arnalds
  2. Ólafur Arnalds
  3. Ólafur Arnalds fagnar útgáfu í Salnum í kvöld
  4. Ólafur Arnalds : Living Room Songs
  5. Ólafur Arnalds – Ljosið

Leave a Reply

Connect with Facebook