Twee Tími – Seapony

Ég skal játa ég er óskaplega veikur fyrir þessu undarlega fyrirbæri sem kallast Twee Pop á ágætri ensku. Skilgreiningin á orðinu „twee“ er í grófum dráttum eitthvað sem er ægilega krúttlegt og sætt. Það er nú einmitt tilfellið í flestum eða öllum þeim lögum sem ég ætla á næstu vikum (eða árum) að draga fram í dagsljósið hér, undir kaflaheitinu „Twee Tími“. Þeir sem fyrirlíta krúttlegt popp geta því hæglega forðast þessa pósta.

Twee er hinsvegar ekki alltaf bara sætt og krúttað, heldur líka röff og pönkað. Hljóðfæraskipan getur verið í meira lagi undarleg og stundum skiptir ekki máli hvað maður getur heldur hvað maður gerir. Mörkin milli Twee og annara tónlistarstefna geta sömuleiðis verið nokkuð óljós, til að mynda eru stefnur sem kallast C-86, Jangle og eitthvað sem virðist vera kallað „Anorak“ nátengdar, og alla jafna er þetta allt sett undir regnhlífarhugtakið „Indie Pop“. Sjálfum hugnast mér lítt svona skilgreiningar, ef tónlist hreyfir við manni þá er það gott og blessað sama hvaða nafni hún nefnist.

Eftir ítarlegar rannsóknir hef ég komist að því að margir sem aðhyllast, og spila, svona músík hafa jafnt gaman af The Carpenters, Burt Bacharach og Serge Gainsbourg sem og Ramones og My Bloody Valentine. Oft er því sameinað á skemmtilegan hátt það sem mér finnst sjálfum best í tónlist, grípandi laglínur og rifnir gítarar. Hljómsveitin Seapony frá Seattle minnir hinsvegar um margt á þá eðal sveit Beat Happening. Hún inniheldur Jen og Danny úr Transmittens (sem ég hef aldrei heyrt nefnda heldur) og vin þeirra Ian. Fátt veit ég meira um bandið en hér eru tvö lög sem ég vona þið hafið gaman af.

Seapony á Facebook | Ye olde Myspace

Tengdar færslur:

  1. Prince Polo
  2. Yo La Tengo syngja Popular Songs
  3. Rjómalagið 11. október: Wolfie – Ikat me
  4. Conor Oberst með nýja plötu
  5. B.sig verður Monotown

Leave a Reply

Connect with Facebook