Kría Brekkan heldur tónleika í Norræna Húsinu

by Rjóminn on september 8, 2010

Tónlistarkonan Kría Brekkan heldur tónleika í Norræna húsinu mánudagskvöldið 27. september kl. 22, en tónleikarnir eru hluti af dagskrá RIFF, Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.

Á tónleikunum mun Kría flytja frumsamda tónlist undir kvikmyndinni The Fall of the House of Usher eftir Jean Epstein, en myndin er frá árinu 1928 og er byggð á sögu eftir Edgar Allan Poe.

Kría heitir réttu nafni Kristín Anna Valtýsdóttir, en hún gerði garðinn frægan með hljómsveitinni múm um langt skeið. Hún hefur þó unnið með mörgum öðrum sveitum, svo sem Stórsveit Nix Noltes, Slowblow, Mice Parade og Animal Collective.

Kría Brekkan – Solush

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Kría Brekkan – Wildering (Suil Version)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Kria Brekkan – Place of You

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu
  2. Ólöf Arnalds heldur tónleika í Norræna Húsinu
  3. Akústik Airwaves í Norræna húsinu
  4. Grænlenska hljómsveitin Nanook í Norræna húsinu 31.ágúst
  5. Legend með fría tónleika á Bar 11 á föstudagskvöldið

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.