Gamalt og gott – Swirlies
by Magnús Hákon Axelsson on september 10, 2010
Man einhver eftir hljómsveitinni Swirlies? Ekki ég. Þessu bandi virðist ég alveg hafa misst af á sínum tíma en þau voru upp á sitt besta circa ’90 – ’95. Bandið hefur reyndar aldrei hætt þannig lagað, og spilaði nokkur gigg í fyrra, en lítið hefur farið fyrir þeim að öðru leyti seinustu árin.
Í árdaga sveitarinar var mikið að gerast í Bretlandi, Britpop og Shoegaze tröllréð öllu, og Swirlies voru einskonar mótsvar Bandaríkjanna við breska skóglápinu. Vissulega er einnig margt sem minnir á öðlingana í Sonic Youth, og bara plötuumslagshönnunin ber keim af því eins og sjá má.
Nú þekkja kannski ekki allir Shoegaze, en frægar sveitir af því taginu eru t.d. My Bloody Valentine, Slowdive og Ride. Shoegaze var og er oft á tíðum ofboðslega hávært en á sama tíma draumkennt og gjarnan í hægu tempói. Meðan þungarokkarar hafa tilhneygingu til að hneigja sig ítrekað fyrir áhorfendum og sveifla hárinu í allar áttir, þá voru shoegaze tónlistarmenn oftast grafkjurrir á sviðinu og störðu einbeittir niður fyrir sig, helst með toppinn fyrir andlitinu. Áhorfendur hentu gaman af þessu, einhver blaðamaður kallaði þetta „shoegazing“ og nafnið festist við tónlistina. Líklegast hafa listamennirnir frekar horft einbeittir á alla chorus og delay effectana sína, en af slíku var alltaf nóg.
Það er hollt og gott að glápa á skóna sína öðru hvoru, og því ekki úr vegi að grafa upp úr glatkistunni þetta eðal band. Hérna eru nokkur tóndæmi. Lögin „Upstairs“ og „Pancake“ eru dæmigert skógláp, meðan „Park the car by the side of the road“ minnir bæði á Sonic Youth og MBV. Við kíkjum svo á nýleg shoegaze bönd á næstu vikum.
Swirlies – Upstairs
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Swirlies – Chris R
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Swirlies – Pancake
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Swirlies – Park the car by the side of the road
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Myndband við lagið „Bell“:
Engar tengdar færslur.


Segðu skoðun þína