Antony syngur á íslensku
by Pétur Valsson on september 15, 2010
Í byrjun október kemur út fjórða breiðskífa Íslandsvinanna í Antony & The Johnsons og heitir hún Swanlights. Það ætti að vekja athygli að eitt laganna, „Fletta“ er sungið (að mestu) á íslensku, en þar nýtur Antony aðstoðar frá Björk og kæmi ekki á óvart að hún bæri ábyrgð á textanum í laginu. Það er í raun Björk sem er í aðalhlutverki í laginu og Antony sönglar með og endurtekur sumar línurnar. Þau eru síður en svo óvön samstarfi því Antony söng í tveimur lögum á síðustu breiðskífu Bjarkar, Volta, árið 2007 og söng á tónleikum hennar í Laugardalshöll sama ár.
Antony & The Johnsons with Björk – Fletta
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Fyrsta smáskífulagið af Swanlights er „Thank You For Your Love“ og kom samnefnd EP plata út fyrir tveimur vikum. Svona er myndbandið við það lag:
Tengdar færslur:


2 comments
Fallegt. En engin leið að skilja textann í fyrri partinum!
by HildurM on Fimmtudagur 16. september 2010 at 10:02:46. #
[...] undanfarið í hinum ýmsu smærri verkefnum, m.a. sungið inn á plötur með Dirty Projectors, Antony & The Johnsons og Ólöfu Arnalds og gert lag fyrir [...]
by Nýtt frá Björk | Rjóminn on Miðvikudagur 8. desember 2010 at 17:33:57. #