The Legends

by Magnús Hákon Axelsson on september 17, 2010

Allt er vænt sem vel er sænskt segir máltækið. Johan Angergård er ofvirkur drengur sem á og rekur sænsku útgáfuna Labrador, sem ætti að vera lesendum Rjómans að góðu kunn. Hann er líka í allavegana þremur hljómsveitum þar sem hann semur meirihluta efnisins, sumarpoppsveitinni Acid House Kings, melló dinnerballöðu dúettinum Club 8 og síðast en ekki síst The Legends sem er hans sóló verkefni þótt vefsíða sveitarinnar segi hana innihalda níu einstaklinga. Hann fær svo fólk með sér til að spila á tónleikum eftir þörfum.

Sveitin varð til árið 2003 og undir eins var hann bókaður sem upphitunarband fyrir The Radio Department. Það vantaði hinsvegar lög og raunverulega hljómsveit svo næstu tvær vikur fóru í að semja og fá hljóðfæraleikara, óháð því hvort þeir kunnu á hljóðfæri, nóg var að langa til að spila. The Legends er núna með fjórar plötur að baki, sú seinasta, Over and Over, kom út í fyrra og er vægast sagt afar frábrugðin fyrri skífum, en á þeim réð melódískt popp með trommuheilum ríkjum.

Á Over and Over eru mörg lög undir áhrifum frá t.d. Jesus and Mary Chain þegar þeir voru hvað háværastir og eins eðal shoegaze sveitinni My Bloody Valentine. Hávaðinn og feedbackið er á köflum slíkt að stappar nærri ólíkindum og einn gagnrýnandi sem kemst betur að orði en ég kallaði þetta „like flossing your ears with barbed wire“ (sjá hér). Svo er kannski Joydivision fílingur í næsta lagi á eftir, og nokkrar huglúfar ballöður, semsagt allt sem hugurinn girnist. Ég er lítið fyrir að gera árslista, en eftir talsverða umhugsun sem lauk núna nýverið, þá tilnefni ég þessa skífu sem eina bestu plötu ársins 2009. Þennan gullmola er hægt að hlusta á „over and over“.

Johan var svo vinsamlegur að svara mér þegar ég spurði hann um þau þrjú lög sem ég ætla að kynna fyrir ykkur hér, fyrst er það lagið „Touch“ sem er á köflum afar MBV-legt, með munnhörpu af öllum hlutum:

The Legends – Touch

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

„I was thinking of not including this one on the album. Not because I don’t like it, I think it’s great. But I figured it pointed out a new direction for a 5th album and I was thinking of keeping it. But then I thought I’ve no idea what kind of Legends album I want to do next time, so let’s use this now…“

The Legends – Jump

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

„Jump“ er ein af ballöðunum, kassagítar, bongótrommur, xylofónn, klapp, og fljótlega bætist við algerlega ómótstæðileg kúabjalla. Þetta segir Johan um lagið:

„I stole the name from Aztec Camera’s version of Van Halen’s „Jump“. I was slightly inspired by the almost riff-like guitar chords there, but of course „my Jump“ ended up sounding nothing like the Van Halen song.“

The Legends – Recife

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Hvítur hávaði og feedback út í gegn, sannarlega eyrnamergshreinsandi konfektmoli. Hljómar stundum eins og gamaldags 33.6k módem. Spilist hátt.

„When I first start writing a song the lyrics are usually a combination of mumbling and random words. Perhaps one or two decent meanings inbetween. But normally, I just sing what comes to mind. I was dating a girl from Recife in Brazil when I wrote Recife and I just happened to sing „Recife“. Then that stuck and was used in the proper lyrics as some sort of metaphore for the escapism-like theme in the lyrics.“

Já ég veit ekki með ykkur, en mér finnst þetta geðveikt. Hérna er svo eitt vídeó og við kíkjum á aðrar hljómsveitir þessa sænska orkubolta á næstu vikum.

Aðdáendaklúbbur Johans á Facebook | The Legends á Myspace

Tengdar færslur:

  1. Airwavesband #8: Crocodiles
  2. Sænskt popp og Hollywood leikarar
  3. Airwavesband #4: jj
  4. Úr Pósthólfinu
  5. Lagalisti á þriðjudegi

One comment

[...] september síðastliðnum skrifaði ég lofrullu um sænsku einsmanns sveitina The Legends sem er hugarfóstur hins hæfileikaríka Johan Angergård. Pilturinn er í fjölda hljómsveita [...]

by Acid House Kings með nýtt efni | Rjóminn on Mánudagur 1. nóvember 2010 at 12:29:58. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.