Suede í Rokklandi
by Rjóminn on október 30, 2010
Í næsta Rokklandi mun æðsti prestur, forseti og menningarmálaráðherra landsins, Sr. Ólafur Páll, fjalla um bresku sveitina Suede í predikun sinni. Mun hann án efa fjalla um hina stórmerkilegu plötu sveitarinnar Dog Man Star sem kom út árið 1994 og (…)
Stina August – Concrete World
by Egill Harðar on október 30, 2010
Stína Ágústsdóttir, sem lesendur Rjómans eiga að kannast við sem söngkonu hljómsveitanna Nista og AXXE, var að gefa út hér á landi plötu undir listamannsnafninu Stina August. Heitir platan Concrete World en á henni fer Stína út í hálfgerða tilraunastarfsemi (…)
Cliff Clavin gefur út á mánudag
by Daníel Hjálmtýsson on október 29, 2010
Næsta mánudag, 1.nóvember, mun frumburður íslensku rokksveitarinnar Cliff Clavin loksins líta dagsins ljós. Hljómsveitin sem hefur nú verið starfandi um allnokkurt skeið, hefur hrifið landann með lögum sínum Midnight Getaways, This Is Where We Kill More Than Time og nú (…)
Tónlist.is greiðir tónlistarmönnun langhæstu upphæðina fyrir spilun á efni þeirra
by Rjóminn on október 29, 2010
Síðastliðnar vikur hefur verið mikil umfjöllun í fjölmiðlum um hvert hið rétta viðskiptasnið tónlistar er fyrir framtíðina og með hvaða hætti rétthafar tónlistar fái tryggar og sanngjarnar greiðslur fyrir nýtingu verka sinna. Mörgu hefur þar verið kastað fram og sitt (…)
Ferskt í fókus: Bowen Staines
by Daníel Hjálmtýsson on október 29, 2010
Bowen Staines er nafn sem væntanlega nokkrir kannast við úr tónlistarlífi Íslendinga en Bowen hefur verið einkar duglegur við að styðja við íslenskt tónlistarlíf með líflegri umfjöllun undir merkjum fyrirtækis síns Dont Panic. Bowen, sem hefur verið iðinn við að (…)
The Swell Season á NASA (28.10.10)
by Kristján Guðjónsson on október 29, 2010
Ég vissi lítið um The Swell Season, þegar mér var boðið að skrifa um tónleika þeirra á NASA. Mig grunaði að músíkin væri ígildi rómantískrar gamanmyndar og hringdi þess vegna í sæta stelpu, hengdi á hana myndavél og dró hana (…)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Upptökur KEXP á Airwaves
by Egill Harðar on október 29, 2010
Hér að neðan eru fimm upptökur sem Seattle útvarpsstöðin KEXP (kexpakkinn eins og fólk kallar hana hér) gerðu í stúdíói RÚV á meðan Airwaves hátíðinni stóð. Fyrir þá sem ekki vita er KEXP ein stærsta háskólaútvarpsstöðin vestanhafs og því ljóst (…)
Worriedaboutsatanremix
by Egill Harðar on október 29, 2010
Íslandsvinirnir í worriedaboutsatan höfðu samband og vildu deila með okkur þremur lögum sem þeir hafa nýlega sett í nýjan búning. Lögin eru eftir Lundúnarsveitina Clock Opera, Manchesterbandið Spokes og White Hinterland en það er listamannsnafn söngkonunnar Casey Dienel. Lögin er (…)
Helgi Valur & The Shemales – Electric Ladyboyland
by Rjóminn on október 29, 2010
Miðvikudaginn þriðja nóvember ber það til fregna að tónlistarmaðurinn Helgi Valur sendir frá sér sína þriðja plötu, Electric Ladyboyland. Auk Helga Vals kemur að plötunni fjöldi listamanna undir samnefnaranum The Shemales, en hópinn skipa sumir af frambærilegustu fulltrúum reykvísku tónlistarsenunnar. (…)
Auglýst eftir verkum fyrir tónlistarhátíðina Ung Nordisk Musik
by Rjóminn on október 29, 2010
Auglýst er eftir tónverkum fyrir tónlistarhátíðina Ung Nordisk Musik 2011, sem haldin verður í Kaupmannahöfn uppúr miðjum ágúst-mánuði, 2011. Hátíðin er ætluð tónskáldum undir þrítugu og koma þar saman 7 tónskáld frá hverju Norðurlandi fyrir sig, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi (…)
Written in Blood Vol. 1 – 5
by Egill Harðar on október 28, 2010
Eins sú hyldjúpasta tónlistarlega gullnáma sem ég hef haft þá ánægju að kafa ofan í nýlega birtist mér í formi safnplatnanna Written in Blood sem maður að nafni Nate Ashley setti saman. Segir sagan að hann hafi verið allan síðasta (…)