Sólóstöff frá Avey Tare og Panda Bear

by Guðmundur Vestmann on október 5, 2010

Báðir söngvarar Animal Collective hyggjast gefa út sólóskífur á þessu ári á vegum Paw Tracks, útgáfufélagi bandsins.

Avey Tare, eða Dave Portner eins og hann heitir réttu nafni, mun senda frá sér plötuna Down There í lok október en það mun vera fyrsta eiginlega sólóskífa kappans. Áður hefur hann gefið út eina plötu með fyrrum eiginkonu sinni, hinni íslensku Kriu Brekkan sem innihélt lög sem voru spiluð aftur á bak. Fyrsta lagið af Down There leit dagsins ljós í gær og nefnist „Lucky 1″. Hljómar óneitanlega eins og það hefði alveg getað ratað inn á Merriweather Post Pavilion, plötu Animal Collective frá því að fyrra.

Avey Tare – Lucky 1.

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Panda Bear hefur verið töluvert iðnari við sólóútgáfu en félagi hans og mun væntanleg skífa hans vera sú fjórða í röðinni. Platan, sem nefnist Tomboy, er væntanleg í verslanir í lok þessa árs. Nú þegar hafa tvö lög litið dagsins ljós, „Slow Motion“ og titillagið „Tomboy“. Næsta smáskífa mun bera nafnið „You Can Count on Me“ og kemur út 19. október. Ég náði þó að hafa upp á tónleikaupptöku af laginu fyrir áhugasama og má hlusta á hana hér fyrir neðan. Ef eitthvað má marka þessi þrjú lög þá er Panda Bear í svolítið rólegri gír á Tomboy heldur en á síðustu plötu sinni, hinni frábæru Person Pitch.

Panda Bear – Slow Motion

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Panda Bear – Tomboy

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Panda Bear – You Can Count on Me

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Engar tengdar færslur.

One comment

[...] Hérna getið þið svo heyrt hin lögin þrjú sem Panda Bear hefur lekið á netið. [...]

by Enn styttist í Tomboy | Rjóminn on Þriðjudagur 18. janúar 2011 at 17:15:57. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.