Airwavesband #7: Efterklang

by Hildur Maral Hamíðsdóttir on október 6, 2010

Hvar: Listasafn Reykjavíkur / Hafnarhúsið
Hvenær:
Fimmtudag kl. 21:40
Á sama tíma: Reykjavík!, Deep Jimi and the Zep Creams, Emmsjé Gauti, Miri, Moddi, Svavar Knútur, Poetrix, Hypno

Danska hljómsveitin Efterklang er eflaust meðal þekktustu erlendu hljómsveitanna á Airwaves að þessu sinni og mikil gleðitíðindi þegar hljómsveitin var staðfest, enda þekkt fyrir þrusu tónleika eins og undirrituð hefur lánsamlega orðið vitni að.

Hljómsveitin er búin að vera starfandi síðan árið 2001 og hefur á þeim tíma gefið út þrjár breiðskífur og tvær (engu síðri!) smáskífur. Á fyrri plötunum var það varkár og einstakur raftónlistarheimur sem tók á móti manni en á nýjustu plötu sveitarinnar, ‘Magic Chairs’, er örlítið meira svigrúm fyrir popp og nýjungar.

Hér á eftir koma  hljóðdæmi og myndbönd frá breiðskífum sveitarinnar – svo er bara um að gera að taka kvöldið frá og njóta tónanna frá hljómsveitinni í eigin persónu!

Doppelganger – af plötunni ‘Tripper’ (2004)

Mirador – af plötunni ‘Parades’ (2007)

Modern Drift – af plötunni ‘Magic Chairs’ (2010)

Engar tengdar færslur.

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.