Deerhoof berjast við hið illa!
by Pétur Valsson on október 10, 2010
Nú þegar eru farnar að detta inn fréttir af plötum sem væntanlegar eru árið 2011 og ein af þeim sem mun væntanlega gleðja okkur í janúar á næsta ári er ný plata frá Deerhoof. Fáar hljómsveitir eru jafn ofurhressar og þessi tilraunaglaða San Francisco sveit, sem átti eina eftirminnilegustu tónleika Airwaves fyrir þremur árum síðan. Nýja skífan heitir Deerhoof vs. Evil og sendi sveitin hið stórskemmtilega lag „The Merry Barracks“ frá sér nú fyrir helgi. Það má nálgast nýja lagið frítt á heimasíðu Polyvinyl útgáfunnar og að sjálfsögðu hlusta það hér á Rjómanum!
Deerhoof – The Merry Barracks
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


One comment
Hello,
I’m trying to get my music blog a bit more attention. The comments section seems to be a bit lonely.
Mind helping out?!
http://grantbeehler.net/GrantBeehlerBlog/
Thank you!
by DowntroddenInDc on Sunnudagur 10. október 2010 at 23:09:55. #