Bubbi – Sögur af ást, landi og þjóð
by Rjóminn on nóvember 20, 2010

Í ár eru 30 ár síðan fyrsta sólóplata Bubba Morthens kom út en það var platan Ísbjarnarblús sem kom út 17. júní 1980. Af því tilefni er nú komin út þreföld plata með 60 lögum Bubba frá öllum ferlinum og eru hljómsveitirnar þá taldar með, Utangarðsmenn, Ego, Das Kapital, MX 21 og GCD.
Þessi glæsilega ferilsútgáfa kemur einnig út í sérútgáfu í takmörkuðu upplagi sem inniheldur plöturnar þrjár ásamt DVD-mynddiski með myndböndum frá ferlinum og völdum tónleikaupptökum. Ferilspakkinn inniheldur 60 lög, eins og áður sagði og er eitt nýtt lag á meðal þeirrra en það er nýja lagið „Sól“ sem hefur heyrst á útvarpsstöðvum landsins undanfarnar vikur og hefur fengið afar góðar viðtökur.
Með útgáfunni fylgir veglegur bæklingur með myndum frá ferlinum og mikið af áður óbirtum myndum. 30 ára ferilsútgáfa Bubba fékk nafnið Sögur af ást, landi og þjóð en með því heiti er vísða til ýmissa minna í útgáfum og textagerð Bubba í gegnum árin.
Bubbi – Blindsker (með Das kapital)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína