Atlas Sound gefur fríar plötur

by Pétur Valsson on nóvember 24, 2010

Bradford Cox, forsprakki Deerhunter, hefur verið einstaklega duglegur síðastliðin ár að senda frá sér efni undir nafninu Atlas Sound þegar honum leiðist. Nú í þessari viku hefur hann sett þrjár plötur af heimaupptökum á netið sem má hlaða niður frítt og nefnast þær Bedroom Databank Vol. 1, 2 og 3. Upptökurnar eru allar gerðar á þessu ári og því er ljóst að Cox er búinn að hafa nóg fyrir stafni, en einnig er hann nýbúinn að gefa út plötuna Halcyon Digest með Deerhunter.

Hlaða má plötunum niður frítt á heimasíðu Deerhunter (ekki er útilokað að fleiri plötur bætist við í vikunni) eða bara tékka á nokkrum lögum af þeim hér:

Atlas Sound – Green Glass Bottles (af Bedroom Databank Vol. 1)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Atlas Sound – Strange Parade (af Bedroom Databank Vol. 2)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Ný EP frá Deerhunter
  2. Náttfari gefur út plötur eftir 10 ára töf
  3. Helgi Hrafn Jónsson gefur út Big Spring
  4. Sumaruppbót
  5. Ný lög frá Arcade Fire

One comment

[...] Snow”. Fyrir utan að vera á fullu með Deerhunter þá gaf Atlas Sound út heilar fjórar plötur á jafnmörgum dögum fyrir um mánuði og því kemur varla á óvart að Cox lætur sér ekki [...]

by Rjómajól – 23. desember | Rjóminn on Fimmtudagur 23. desember 2010 at 09:09:02. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.