Tom Brosseau og Gregory & the Hawk á Faktorý í kvöld
by Rjóminn on desember 1, 2010
Bandarísku tónlistarmennirnir Tom Brosseau og Gregory & the Hawk leika á Faktorý, gamla Grand Rokk að Smiðjustíg 6, í kvöld, miðvikudaginn 1.desember, ásamt Mr. Sillu. Hér er á ferð heimsókn íslandsvina sem m.a. hafa leikið á tónleikum með múm, Amiina, Ólöfu Arnalds og Lay Low á erlendum vettvangi.
Bæði Tom Brosseau og Gregory & the Hawk eru á mála hjá breska útgáfufyrirtækinu Fat Cat, því hinu sama og gaf út plötur Sigur Rósar & múm á mótunarárum þeirra. Gregory & the Hawk er listamannsnafn tónlistarkonunnar Meredith Godreau, en hún og Tom Brosseau koma hingað til lands beint af sameiginlegu tónleikaferðalagi um Evrópu.
Nýjasta plata Gregory & the Hawk Leche leit dagsins ljós fyrr í mánuðinum en það er Adam Pierce, forsprakki Mice Parade, sem stjórnaði upptökum á plötunni. Meredith nefnir jafnan listamenn eins og Nick Drake, Liz Phair og PJ Harvey sem helstu áhrifavalda þó hún reyni einnig að forðast „singer/songwriter“ skilgreininguna á tónlist sinni, meðal annars með nafninu Gregory & the Hawk.
Tom Brosseau er þó tvímælalaust hægt að flokka í fyrrnefndan „singer/songwriter“ flokk og sækir hann mikið af efni sínu í bandarískan sagnabrunn og amerískar bókmenntir, þjóðlagatónlist og kántrý-hefð. Tom er fæddur í Grand Forks í Norður Dakota-fylki sem var yrkisefni frábærrar plötu, samnefnda heimabænum, sem kom út árið 2007. Tom býr þó í dag fjarri heimasveit sinni í stjörnum prýddri Los Angeles þar sem hann hefur hrifið með sér þónokkrar stjörnur og er Natalie Portman meðal stóraðdáenda hans.
Tom hefur gefið út þrjár stórar plötur undir merkjum Fat Cat síðastliðin ár, Emty houses are lonely (2006), Cavalier (2008) sem var tekin upp af John Parish og síðan kom Posthumous Success út síðastliðið ár. Leiðir Toms hafa nokkrum sinnum legið með íslenskum listamönnum, þ.á.m. hefur hann komið fram á tónleikum, eins og áður sagði, með Lay Low, Ólöfu Arnalds og Amiina og hann lék á heilu tónleikaferðalagi um Bandaríkin með með múm árið 2007.
Mr. Silla kom fram á Innipúkanum síðastliðna verslunarmannahelgi eftir nokkurt hlé á spilamennsku með glænýju súperbandi sem inniheldur m.a. meðlimi úr Kimono, Seabear, múm og sjálfan KGB. Áður hefur Mr. Silla gefið út plötuna Foxbite ásamt Mongoose sem kom út á vegum Rafraf árið 2007 en hefur síðan m.a. verið upptekin við það að syngja og leika með múm.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 og kostar litlar 1.000 kr. inn. Forsala fer fram í Havarí, Austurstræti.
Tom Brosseau – Here Come the Water Now
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Gregory & the Hawk – Landscapes
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína