Nýtt frá Fleet Foxes

by Valþór Ásgrímsson on desember 6, 2010

Margir hafa beðið í ofvæni eftir að félagarnir í Fleet Foxes sendi frá sér nýtt efni. Þeir slógu í gegn svo um munaði með sinni fyrstu skífu árið 2008 og strax ári seinna hyllti undir nýja plötu en henni hefur ítrekað verið frestað sökum mikilla anna. En nú hafa þeir setið sveittir við mánuðum saman í hljóðveri sínu í Seattle. Samkvæmt nýjasta hefti Clash hafa þeir nú fært sig yfir til New York til að leggja lokahönd á gripinn.

Forsprakkinn Robin Pecknold segir texta laganna á vera persónulegri nótum en áður og að tónlistin sé nokkurn veginn af sama uppruna nema hvað hann vonar að hljómurinn muni vera fágaðri. Til gamans má geta að 12 strengja gítar kemur við sögu í flestum laganna. Á meðal lagatitla eru „Lorelai“, „Tripolee“, „Silver City“, „Bedouin Dress“ og „Blue Spotted Tail“, sem margir hafa eflaust heyrt í flutningi Pecknold. Enn sem komið er hefur platan ekki hlotið nafn en vonir standa til þess að hún komi út snemma vors. Þá er bara að bíða eftir að taki að birta á ný.

Fleet Foxes – Blue Spotted Tail (Live On BBC6)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Nýtt Fleet Foxes lag
  2. Fleet Foxes frumflytja fleira
  3. Fleet Foxes snúa aftur
  4. Meira nýtt frá Fleet Foxes
  5. Roskilde ’09 : Fleet Foxes

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.