Seabear í Tjarnarbíó

by Rjóminn on desember 17, 2010

Hljómsveitin Seabear mun halda sína síðustu tónleika á árinu í nýjum og glæsilegum sal Tjarnarbíós sunnudaginn 19. desember næstkomandi. Þetta verða síðustu tónleikar Seabear í bili þar sem hljómsveitin ætlar sér að semja efni á nýja plötu sem mun vonandi koma út snemma á árinu 2012. Hljómsveitin hefur verið afar iðinn við spilamennsku í öllum helstu borgum Evrópu og Bandaríkjanna á þessu ári til þess að fylgja eftir útgáfu annarrar plötu sinnar We Built a Fire eftir sem kom út hjá þýska útgáfufyrirtækinu Morr Music.

Platan hefur fengið lofsamlega dóma bæði í íslenskum og erlendum fjölmiðlum og má þar nefna að hún fékk 5 stjörnur í Morgunblaðinu og 4 stjörnur í Q Magazine fyrr á árinu. Ennfremur þykir hljómsveitin vera einkar góð á tónleikum og fengið frábæra dóma fyrir tónleika sína erlendis.

Hljómsveitin er í sínu besta formi eftir að hafa spilað á rúmlega 100 tónleikum erlendis á þessu ári og það er því kærkomið fyrir landann að fá að geta borið hljómsveitina aftur augum síðasta í aðventu fyrir jól þar sem hún verður í sparibúningnum og þar sem allt verður lagt í umgjörð og útlit tónleikana.

Það skal þó taka sérstaklega fram að miðað við tvenna tónleika sem þau héldu í Reykjavík í sumar að það var uppselt í forsölu á þá og ætti fólk því að vera tímanlega í að kaupa sér miða því það eru aðeins seldir um 200 miðar á tónleikana í Tjarnarbíó.

Um upphitum mun hljómsveitin Hudson Wayne sjá um.

Miðaverð á tónleikana er 2000 krónur. Húsið opnar klukkan 20:00 og tónleikar munu hefjast stundvíslega klukkan 21.00.

Forsala aðgöngumiða er hafin í anddyri Tjarnarbíó á virkum dögum frá 13-15 og á midi.is.

Seabear – Lion Face Boy

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tengdar færslur:

  1. Miðnæturtónleikar Seabear á Menningarnótt
  2. Heimkomutónleikar múm og Seabear
  3. Moses Hightower og Seabear í Havarí
  4. Seabear á tónleikum
  5. Nýtt efni frá Seabear

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.