Nýtt efni frá Bright Eyes
by Guðmundur Vestmann on janúar 7, 2011
Bright Eyes-flokkurinn með Conor Oberst í fararbroddi stefnir að útgáfu sinnar tíundu breiðskífu í febrúar á afmælisdegi söngvarans, sem er víst sá fimmtándi. Lagið „Shell Games“ verður að finna á plötunni en það var einmitt að lenda glóðvolgt á neti intersins. Eftir hafa hlýtt á smíðina er það ljóst að Conor er að feta í spor fleiri þjóðlagasöngvara sem undanfarið hafa notast æ meira við elektrónísk hljóðfæri en áður, s.s. Iron & Wine á væntanlegri plötu sinni og Sufjan Stevens á Age of Adz. Ætli að þetta sé einhver ný bóla?
Skífa Bright Eyes mun víst bera titilinn The People’s Key og kemur að vanda út á vegum Saddle Creek útgáfunnar. Nokkuð er víst um gestagang á plötunni en eru það aðalega vinir Oberst sem eru þar á ferðinni og spilla margir þeirra í lítt þekktum rokkböndum sem óþarft er að nefna hér.
Bright Eyes – Shell Games
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


2 comments
Þetta verður hörkuplata, sjöunda stúdíplata Bright Eyes og sú fyrsta frá árinu 2007.
Varla hægt að kalla það nýmæli hjá Bright Eyes að nota elektrónísk hljóðfæri. Hefur alveg verið gegnumgangandi á plötunum og þá sérstaklega á „Digital Urn in Digital Ash“.
Íslenskir Bright Eyes aðdáendur ættu að skella sér a mjög töff tónleika sem hann mun halda í Royal Albert Hall 23. júní í sumar.
Sjálfur mun ég sjá Conor og félaga 15. mars hér í Chicago. Það verður stuð.
by bio on Laugardagur 8. janúar 2011 at 19:51:08. #
Ég verð að viðurkenna að ‘Digital Urn in Digital Ash’ fór alfarið framhjá mér. Skömm í hattinn.
En kannski var þetta asnalega orðað hjá mér að segja að hann væri endilega að feta í fótspor einhvers. Ég ætlaði nú bara að vekja athygli á þessari rafvæðingu hjá fólk-músíköntum sem hefur færst mikið í aukanna undanfarin ár. Fleiri dæmi má auðvitað nefna, s.s. á plötu Monsters of Folk og hinni stórgóðu ‘I See the Sign’ hans Amidons.
Annars þakka ég bara gott innlegg!
by Guðmundur Vestmann on Þriðjudagur 11. janúar 2011 at 14:43:24. #