Músíktilraunir 2011
by Rjóminn on febrúar 15, 2011
Nú er um að gera að ræskja sig, dusta rykið af sneriltrommunni, kaupa nýja strengi í bassann og gítarinn og stinga hljómborðinu í samband.
Músíktilraunir 2011 nálgast óðfluga og því ekki seinna vænna en að undirbúa þátttöku.
Hver hljómsveit eða einstaklingur skilar inn tveimur demó upptökum af frumsömdu efni á MP3 formi inná www.musiktilraunir.is, ásamt mynd í góðri upplausn og stuttri lýsingu.
Skráning hefst á www.musiktilraunir.is 28. febrúar og lýkur 13. mars en undankvöld tilraunanna eru 25, 26, 27, 28 mars og er úrslitakvöldið 2.apríl.
Hljómsveitir geta fengið aðstoð við upptökur á demóum í Hinu Húsinu. Nánari upplýsingar fást hjá musiktilraunir@itr.is
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína