Hljóðdæmi frá Battles
by Guðmundur Vestmann on mars 14, 2011
Eins og við greindum frá fyrir skömmu munu tilraunarokkararnir í Battles gefa út Gloss Drop, sína aðra breiðskífu í sumar, nánar tiltekið þann sjötta júní. Fréttatilkynningu fylgdu ýmsar upplýsingar, s.s. að platan innihéldi 12 lög og Kazu Makino, söngkona Blonde Redhead, léki aukahlutverk á plötunni. Ekkert hljóðdæmi fylgdi þó – fyrr en nú!
Fyrsti singúll Glass Drop nefnist „Ice Cream“ og má heyra lagið hér að neðan. Í þetta skiptið er það Sílemaður að nafni Matias Aguayo sem fyllir upp í skarðið sem gítarleikarinn Tyondai Braxton skildi eftir sig, en Aguayo þessi hefur verið að mála hjá þýsku Kompakt útgáfunni. Er nokkuð annað að gera en að hlusta?
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína