
Þá er fjórða og síðasta undanúrslitakvöldi Músíktilrauna lokið. Tjarnarbíó var troðfullt og gríðarleg stemming í húsinu.
Að þessu sinni kaus salurinn Primaveru sem er skipuð fimm ungmennum úr Kópavogi sem spila klassískt rokk. Dómnefndin valdi hinsvegar rokkbandið My final Warning til þess að fara í úrslit.
Nú hafa verið valin 8 bönd áfram til þess að spila á úrslitakvöldinu næstkomandi laugardag, 2.apríl, í Íslensku Óperunni.
Einnig er vert að geta þess að dómnefnd getur valið allt uppí 3 bönd í viðbót til þess að keppa á laugardaginn og verður tilkynnt um það á www.musiktilraunir.is á morgun.
Primavera – Never Again
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
My Final Warning – That Girl
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.






http://www.facebook.com/PrimaveraMusic