Nýtt lag frá MMJ
by Guðmundur Vestmann on apríl 12, 2011
Nú styttist óðfluga í Circuital, sjöttu breiðskífu suðurríkjarokkaranna í My Morning Jacket. Platan kemur út þann síðasta maí-dag á vegum ATO-útgáfunnar, og að öllum líkindum Rough Trade í Evrópu. Rétt í þessu var bandið að senda út dánlód-kóða á fyrst singúl plötunnar, en það er titillagið Circuital. Þetta auga hér að ofan er svo koverið á plötunni.
Við fyrstu hlustun er ljóst að bandið er farið að leit svolítið aftur í ræturnar, í átt að fyrri verkum sínum. Hér er á ferðinni köntrískotið rokk, svolítið 70′s þematískt. Sönglínum Jim James er svo drekkt í reverb-i, en lítið hefur farið fyrir slíku á síðustu tveimur skífum bandsins. Herlegheitin eru svo skreytt með strengjum. Ekki dónalegt það! Eflaust munu margir aðdáendur bandsins gleðjast yfir þessari þróun, því á síðustu plötu, Evil Urges, var bandið vægast sagt í ruglinu.
My Morning Jacket – Circuital
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína