Reykjavík Music Mess: Deerhunter

by Rjóminn on apríl 13, 2011

Stærsta númerið á Reykjavík Music Mess er vafalaust indírokksveitin Deerhunter, með Bradford Cox fremstan meðal jafningja. Hróður sveitarinnar hefur aukist mjög á undanförnum árum og hefur frægðarsól þeirra félaga sennilega aldrei risið jafn hátt og á síðasta ári þegar Halcyon Digest kom út, en platan fékk lofsamlega dóma frá gagnrýnendum jafnt sem aðdáendum.

Deerhunter var stofnuð árið 2001 í Atlanta í Georgíu-fylki af Cox, söngvara sveitarinnar, og trommaranum Moses Archuleta. Það var þó ekki fyrr en 4 árum síðar að fyrsta skífa bandsins leit dagsins ljós, en hún nefndist Turn It Up Faggot. Platan fékk svosem enga gríðarlaga athygli og hefur Bradford opinberlega lýst því yfir að hafa óbeit á þessari frumraun Deerhunter.

Árið 2007 kom svo önnur breiðskífa bandsins út, Cryptograms. Þá fóru hjólin að snúast og Deerhunter fékk verðskuldaða athygli frá tónlistarspekúlöntum. Vafalaust hefur „Best New Music“ stimpillinn frá Pitchfork eitthvað haft með það að gera. Það var svo ekki nema ári síðar að hin tvöfalda Microcastle/Weird Era Cont. leit dagsins ljós. Sagan segir að þar sem Microcastle lak á netið löngu áður en hún átti að koma út, hafi bandið ákveðið að skella bara í aðra plötu til að verðlauna þá sem myndu nenna að bíða eftir útgáfudeginum sjálfum. Rétt eins og plata númer tvö, þá fékk Microcastle/Weird Era Cont. afar jákvæða dóma og endaði á mörgum árslistum það árið. Þróunina á milli platnanna mátti glögglega heyra; bandið færðist æ nær skóglápsrokki og varð óhræddara við tilraunastarfssemi, líkt og Weird Era er ljóslifandi dæmi um.

Deerhunter er hinsvegar ekki nóg fyrir Bradford heldur hefur hann líka lagt stund á sólóverkefni. Árið 2008 gaf Bradford út sína fyrstu sólóplötu sem Atlas Sound, Let the Blind Lead Those Who Can See but Cannot Feel. Sólóverkefnið minnir að mörgu leiti á Deerhunter, en er ef til vill aðeins poppaðra og rafrænna. Önnur sólóskífan kom svo út ári síðar, platan Logos, sem gaf þeirri fyrri ekkert eftir.

Atlas Sound (feat. Panda Bear) – Walkabout (af Logos)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Tónlist Deerhunter hefur nú verið tengd við ýmsar stefnur með misjöfnum árangri og raunar er hugmyndin fráleit að reyna að koma yfir hana orðum. Í grunninn er hér á ferðinni indírokk undir áhrifum frá shoegaze, pönki, ambient-tónlist og drauma-poppi, ef það segir eitthvað. Mikil sköpunargleði virðist ríkja innan herbúða sveitarinnar og það skilar sér svo sannarlega yfir á plastið þar sem frumlegar og áhugaverðar leiðir eru farnar í tjáningu og hljóðsköpun.

Það verður virkilega spennandi að sjá hvernig Deerhunter skilar tónlist sinni á tónleikum. Sennilega má búast við hressilegri keyrslu og hávaðarokki ef eitthvað er að marka stúdíóupptökurnar. Fyrir þá sem vilja tryggja sér miða er bent á þessa síðu: miðinn kostar 7990 kr og gildir bæði á Nasa og Norræna húsið kvöldin 16. og 17. apríl.

Deerhunter – Oceans (af Turn it Up Faggot)

Deerhunter – Strange Lights (af Cryptograms)

Deerhunter – Agoraphobia (af Microcastle)

Deerhunter – Helicopter (af Halcyon Digest)

Tengdar færslur:

  1. Reykjavík Music Mess: Ný tónlistarhátíð
  2. Reykjavik Music Mess: Kimono
  3. Reykjavik Music Mess: Reykjavík!
  4. Reykjavik Music Mess: Hellvar
  5. Reykjavik Music Mess: Samaris

One comment

ég get lofað ykkur miklum hávaða … ég sá þá á útitónleikum í New York og ég er viss um að öll borgin hafi heyrt tónleikana

by Pétur Valsson on Fimmtudagur 14. apríl 2011 at 17:34:36. #

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.