Smáskífa frá Beirut
by Daníel Hjálmtýsson on júní 6, 2011
Zach Condon og félagar í Beirut hafa sent frá sér nýja smáskífu. Lagið kallast East Harlem og er það fyrsta sem heyrist frá sveitinni frá árinu 2009 þegar Beirut sendi frá sér EP plötuna March of The Zapotec/Holland. Lítið fór fyrir plötunni þrátt fyrir fína dóma en aðdáendur hafa beðið eftir breiðskífu allt frá árinu 2007 þegar hin frábæra The Flying Club Cub leit dagsins ljós.
Aðdáendur Beirut geta nú tekið gleði sína á ný og hlýtt á ljúfa tóna Beirut í laginu East Harlem.
Beirut – East Harlem by Revolver USA
Engar tengdar færslur.


Segðu skoðun þína