Póst Rokk og Ról – Agent Fresco, Lockerbie og Of Monsters and Men ferðast um landið
by Rjóminn on júlí 16, 2011

Hljómsveitirnar Lockerbie, Agent Fresco og Of monsters and Men ætla að skella sér hringinn í kringum landið. Túrinn hefst 18. júlí og lýkur 22.
Fyrstu tónleikarnir verða mánudaginn 18. júlí á Prófastinum í Vestmannaeyjum kl 21.00. Daginn eftir verða leynitónleikar á leynistað sem verða auglýstir samdægurs á Rás 2. Miðvikudaginn 20. júlí verður haldið til Seyðisfjarðar þar sem að tónleikar verða haldnir í Gamla Bíói sem munu hefjast kl 21:00. Fimmtudaginn 21. júlí verða tónleikar í Hofinu á Akureyri og munu þeir hefjast kl 21:00.

Að lokum verða svo tónleikar í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi og munu þeir einnig hefjast kl 21:00.
Miðaverð á alla tónleika eru einungis 1000 kr. nema á leynitónleikana.
Rás 2 verður með dagleg viðtöl og innslög við hljómsveitirnar fyrir þá sem vilja fylgjast með gangi mála!
Lockerbie – Í Draumi
Of Monsters and Men – From Finner
Agent Fresco – Translations
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína