Smáspjall við hljómsveitina GROUPLOVE
by Edda Fransiska Kjarval on júlí 21, 2011
Það hefur verið mikið suð í kringum hljómsveitina GROUPLOVE seinasta árið og fyrsta lag þeirra, „Colours“, gaf góða hugmynd um hvers er að vænta í september þegar fyrsta plata hljómsveitarinnar kemur út.
Meðlimir GROUPLOVE kynnust í listamannabústað á eyjunni Krít. Að dvöl lokinni tvístruðust þau hins vegar í ólíkar áttir enda frá London, New York og Los Angeles. Á Krít höfðu þau hins vegar réttilega uppgötvað að það er sjaldgæft að finna jafn iðandi samhljóm milli fimm einstaklinga og ákváðu að reyna frekar á samstarfið. Þau fluttu því öll til Los Angeles og tóku upp EP plötu sína, sem heitir eftir hljómsveitinni. Á plötunni er að finna áðurnefnt lag þeirra „Colours“, sem hefur verið stanslaust í spilaranum hjá undirritaðri og lent á ófáum vinamixdiskum þetta árið.
GROUPLOVE – Itchin on a Photograph
“Við komum líklegast öll frá ólíkum vetrarbrautum tónlistarlega, sem skapar stundum erfiðleika þegar við rífumst yfir hljómtækinu í rútunni en á móti virkar það fullkomlega þegar við skrifum, tökum upp og komum fram saman.”, segja þau aðspurð um samstarfið.
“Við stofnuðum hljómsveitina án nokkurs bakgrunns né tengingar við hvert annað þannig að við vorum og erum ennþá fullkomlega opin gagnvart samstarfinu og reynum að viðhalda því hugarfari. Ef við höfum ekki pláss fyrir hugmyndir allra þá bara gerum við lögin því lengri. Fyrsta smáskífan okkar var til dæmis 43 mínútur. OK það er reyndar lygi.”
Ég spurði sveitarmeðlimi hvað þau væru sjálf að hlusta á þessa dagana og hvort tónleikar Ísland væru nokkuð á dagskránni.
“Í spilaranum er No Sleep með Wiz Khalifa, Broken Jaw með Foster the People, Dirt Road Anthem með Jason Aldeen, Opening Ceremony með Get Busy Committee og Going Through Hell með The Streets. Ef það er eftirspurn eftir GROUPLOVE á Íslandi þá komum við!” Þau bættu því líka við að þau vildu ólm sjá eldfjallið í Grímsvötnum.
Plata GROUPLOVE – Never Trust A Happy Song kemur út 13. september. Vonandi fáum við að sjá hljómsveitina spila á Íslandi áður en næsta eldfjall gýs, þó það kunni að vera stutt í það.
Grouplove – Colours
Tengdar færslur:


Segðu skoðun þína