James Murphy (DJ Set) á Airwaves
by Kristján Guðjónsson on ágúst 25, 2011
Ef það er eitthvað sem ætti að verða til þess að þeir örfáu miðar sem eftir eru á Iceland Airwaves seljist upp, þá er það fréttatilkynningin sem barst Rjómanum í dag.
James Murphy mun koma fram á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í haust! Það þarf vart að kynna Murphy fyrir tónlistaráhugafólki en hann hefur verið fyrirferðarmikill sl. áratug bæði á sviði útgáfu (DAF) og sem listamaður í ýmsum verkefnum þó frægastur sé hann án efa fyrir sólóferil sinn og hina mögnuðu sveit LCD Soundsystem. Það verður dansað alla nóttina þegar James Murphy mætir á svæðið – það er ljóst!
Nánar um James Murphy hér: www.lcdsoundsystem.com
Tengdar færslur:


3 comments
Það stendur á airwaves síðunni að hann sé frá UK. er ekki james murphy lcd frá bandaríkjunum ? eru þetta mistök
by Axel on Mánudagur 29. ágúst 2011 at 14:56:23. #
Tjah….
by Egill Harðar on Mánudagur 29. ágúst 2011 at 20:36:02. #
líklega mistök hjá Airwaves fyrst hann var með dj set í sumar á sonar festival http://www.youtube.com/watch?v=UcdCEzvzaB4
by Gaus on Miðvikudagur 31. ágúst 2011 at 17:30:32. #