Airwavesdagbók Egils : Miðvikudagur

by Egill Harðar on október 13, 2011

Þá er fyrsta Airwaves degi lokið og nýr tekinn við. Hátíðin byrjar vel og ómuðu hljómar úr hverjum króki og kima í miðbænum öllum. Allstaðar var fólk allstaðar frá og stemmingin mögnuð enda eftirvæntingin og spennan mikil.

Eins og gerist þá riðlast tónleikaplön alltaf eitthvað og svo dettur maður alltaf einhverstaðar inn fyrir slysni og sér eitthvert bandið sem kemur manni skemmtilega á óvart (voðalega er þetta allt eitthvað einhvernveginn hjá mér).

Ég hóf kvöldið á að sjá finnsku öldungana í 22 Pistepirkko off-venue á Bar 11 en þeir tónleikar voru í boði gogoyoko. Voru þeir bara nokkuð góðir og áttu nokkra magnaða spretti inn á milli þó þeir væru ekkert endilega að gefa sig alla í flutninginn. Næst lá leiðin á Amsterdam þar sem Ching Ching Bling Bling bauð uppá veislu. Spacevestite voru þar í miðju prógrammi og stóðu sig vel. Á meðan ég beið eftir að Pornopop stigu á stokk skaust ég yfir á Gaukinn og sá Blaz Roca trylla líðinn enda fagmaður fram í fingurgóma. Þegar ég kom til baka voru Pornopop þegar byrjaðir á sínu fyrsta lagi. Var mikill og góður stígandi í lögum þeirra og enduðu þeir settið með húsfyllina algerlega á sínu bandi. Gott sjóv það.

Næst lá leiðin á Dillon þar sem off-venue dagskráin var enn á fullu. Þar komu, sáu og sigruðu surf rokkararnir í El Camino og var hápunkturinn hjá þeim án efa ábreiða af gamla Chantays slagaranum „Pipeline“. Það þótti mér flottur endir á kvöldinu og hélt ég því sáttur heim á leið til að safna kröftum fyrir kvöldið í kvöld.

The Chantays – Pipeline

Engar tengdar færslur.

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.