Gímaldin og félagar gefa út

by Magnús Hákon Axelsson on október 30, 2011

Gísli Magnússon, sem alla jafna svarar listamannsnafninu Gímaldin, hefur hóað saman valinkunnum mönnum úr tónlistarbransanum, Gísla Má Sigurjónssyni gítarleikara Bacon og Þorvaldi Gröndal trommuleikara sem margir þekkja úr eðalsveitum s.s. Trabant, Kanada og California Nestbox. Saman hafa þeir félagar nú hljóðritað og gefið út sjóðheita breiðskífu sem ber heitið Þú ert ekki sá sem ég valdi. Eftir að hafa fengið smá forsmekk af skífunni fannst Rjómanum ekki hægt annað en að taka hús á Gímaldin og forvitnast nánar um plötuna og samstarfið. Ágætt er að láta fyrstu tónana hljóma strax meðan rennt er yfir textann:

Gímaldin og félagar – Reggjað á Gulaþingi

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Þetta byrjaði eiginlega með því að við Gísli létum verða af samstarfi sem við höfðum lengi ætlað okkur, þetta var síðla á „uppbyggingarárinu“ 2009, allir voru meira og minna atvinnulausir, listin blómstraði og pólitíkusar lofuðu botnlausu uppgengi. Ég var með bunka af lögum þegar ég kom frá Rússlandi, mest af þeim hafði farið á Sungið undir radar en eftir stóðu lög á sirka eina breiðskífu.

Gímaldin hafði á lager ógrynni af trommugrunnum sem upphaflega átti að nota í annað verkefni. Það var hinsvegar í biðstöðu og því hafði hann samið lögin ofan á þessa ónotuðu trommutakta.

Við Gísli fórum að spila þessi lög til, enda átti að útsetja lögin upp á nýtt, síðan fór Doddi að mæta en það var skemmtilegur tvistur þarsem hann hafði upprunalega trommað fyrir mig teikin sem lögin voru samin yfir. Auk laganna frá Rússlandi prófuðum við nokkur eldri lög og nokkur þeirra runnu strax inn í skemmtilega útsetningu og fóru með. Til að byrja með var bandið í því að kynna Sungið undir radar, en það var kanski ekki mjög markvisst enda spiluðum við aldrei neitt af henni. Við spiluðum bara þessi lög, sem áttu að fara á næstu plötu.

Já það má segja að það sé ekki mjög markvisst. En það er mikið lagt í textana á plötunni og útsetningar hugaðar þannig að tónlistin þjóni textanum frekar en öfugt. Þetta verður berlega ljóst þegar Gísli er spurður nánar út í textagerðina:

Textarnir urðu margir til útfrá aðferð þarsem merking og innihald er ekki kontretiseruð, heldur látin fljóta undir niðri meðan orðum er raðað saman útfrá túlkun og tifi tóneyrans. Á sama hátt og innihaldi er haldið frá því að mótast um of (þetta er gert til að forðast frasa og of almennar hugmyndir) er systematísk bygging, (endarím, útreiknanlegir stuðlar, jafnar braglínur), látin víkja fremur fyrir hinni óreglulegu innri byggingu sem áðurnefnd aðferð býr til. Það er hefðbundin kveðskapur inn á milli, eða hefðbundnari ef svo má segja – en hið fyrra finnst mér mun áhugaverðara í dag.

Hérna fylgja með nokkur lög af plötunni Þú ert ekki sá sem ég valdi, en hana  má versla í Smekkleysu á Laugavegi ellegar panta í gegnum Facebook síðuna. Þess verður heldur ekki langt að bíða að blásið verði til veglegra útgáfutónleika.

Gímaldin og félagar – Ballaðan um Íslensku Gereyðingarvopnin

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Myndband við lagið „Rassstelpan“

Gímaldin og félagar á Facebook

Tengdar færslur:

  1. Hjálmar gefa út ljósmyndabók. Óvæntir tónleikar á morgun.
  2. Ben Frost & Daníel Bjarnason gefa út SÓLARIS
  3. Bestu lög 2009 : Fyrsti hluti
  4. Bedroom Community kynnir Puzzle Muteson
  5. Rjómalagið 8.ágúst: Björk – Virus

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.