Local Natives ólmir að koma á klakann

by bio on desember 7, 2011

Fyrir tónleika Local Natives í gærkvöldi í Chicago spjallaði ég fyrir hönd Rjómans stuttlega við Taylor Rice, söngvara og gítarleikara þessarar ágætu kaliforníu sveitar.

Local Natives hefur átt sérlega góðu gengi að fagna eftir útgáfu fyrstu plötu sinnar Gorilla Manor. Eftir mikið spilerí með sveitum eins og Arcade Fire og The National undanfarin misseri voru tónleikarnir í gær hinir síðustu í bili enda sveitin í þann mund að hefja smíði annarar plötu sinnar.

Taylor er hinn vænsti drengur og aðspurður var hann meira en til í að koma til Íslands. Hann vissi ekki mikið um Ísland en var mikill aðdáandi okkar stærstu tónlistarstjarna. Hann lýsti ómældri aðdáun sinni á Björk Guðmundsdóttur og þekkti feril hennar og sögu greinilega mjög vel og var auk þess mjög hrifinn af Sigur Rós. Ég sagði honum endilega að kynna sér íslenska músík frekar enda væri ýmislegt „Beyond Sigur Rós“ og benti honum á samnefnda heimildarmynd.

Local Natives – Sun Hands (Live on KEXP)

Ég gerði mitt besta að sannfæra hann um að Ísland væri frábært tónleikaland fyrir Local Natives. Með rökunum að Iceland Airwaves væri frábær hátíð, Harpan frábær staður til að spila á og að Ísland væri frábær viðkomustaður á leið yfir Atlantshafið var hann sannfærður, hafi hann ekki verið það fyrir, að Local Natives þurfi að láta sjá sig á klakanum innan tíðar.

Hvað segið þið? Væri stemmning fyrir Local Natives á klakanum?

Hvort það verður á Iceland Airwaves eða síðar er þá bara spurning. Hressir prómótórerar sem vilja komast í samband við bandið skulu endilega hafa samband við Rjómann.

Tengdar færslur:

  1. Smáspjall við hljómsveitina GROUPLOVE
  2. Sage Francis á Sódóma 3.september
  3. Jónsi í tónleikaferð
  4. Ég minni á Elliott Smith
  5. Nýtt frá The Pains of Being Pure at Heart

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.