Mouse on Mars snúa aftur til jarðar

by Pétur Valsson on febrúar 15, 2012

Músabræðurnir þýsku í Mouse on Mars munu nú seinna í mánuðnum senda frá sér nýja breiðskífu - Parastrophics. Þetta er að sjálfsögðu mikið gleðiefni fyrir rafkúnstnera enda eru komin 6 ár síðan hin hressa Varcharz kom út. Í millitíðinni komu reyndar út hin snarfrábær samstarfsplata sveitarinnar með Fall fyrirliðanum Mark E. Smith árið 2007 svo og frekar fríkað hljóðskor við útvarpsleikritið Die Abschaffung der Arten í fyrra.

Nú er hinsvegar loks komið að nýju efni frá Mouse on Mars og má heyra formsmekkinn af plötunni, „Polaroyced“ hér að neðan:

Mouse on Mars - Polaroyced

 

Svo er nú um að gera að rifja upp eitt gamalt myndband frá sveitinni – þetta er af hinni stórskemmtilegu Niun Niggung (1999):

Engar tengdar færslur.

Segðu skoðun þína

Required.

Required. Not published.

If you have one.