Tvö ný Radiohead lög
by Rjóminn on febrúar 28, 2012
Radiohead hóf tónleikaferð um Bandaríkin nú í vikunni og á heillangri dagskránni – sem allt í allt taldi 24 lög – voru tvö glæný lög. Stykkin nefnast „Identikit” og “Cut A Hole” og nú er bara spurning um hvort sveitin sé strax farin að huga að nýrri plötu – þó varla tæpt ár sé liðið síðan King of Limbs kom út.
Radiohead – Identikit (Live 2-27-12)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Radiohead – Cut A Hole (Live 2-27-12)
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Annars mun sveitin vera á túr meira og minna út árið og er þegar uppselt á allfelsta tónleikana. Ef einhverjir eru þó spenntir fyrir að leggja land undir fót og fara í pílagrímsferð á Radiohead tónleika má sjá hvar enn er hægt að fá miða á heimasíðu sveitarinnar.
Tengdar færslur:


One comment
Hlakka til að heyra þessi lög.
Var ekki nógu ánægður með nýju plötuna. Finnst þeir vera farnir út á brautir sem þessi hljómsveit á ekki heima á. En það er bara mín skoðun.. hef verið aðdáandi Radiohead árum saman.
by Einar on Þriðjudagur 28. febrúar 2012 at 18:40:18. #