
Í dag var tilkynnt hvaða listamenn mæta á Lollapalooza í Chicago 3.- 5. ágúst í sumar og ber hæst að Of Monsters and Men og Sigur Rós munu representa Ísland á hátíðinni. Að venju er boðið upp á spennandi blöndu af rótgrónum listamönnum og nýjum og ferskum listamönnum.
Í boði verður allt frá Black Sabbath og Red Hot Chili Peppers til nýstirna eins og Alabama Shakes.
Alabama Shakes – Hold On
Ég er talsvert spenntari fyrir lænöppi ársins en í fyrra og auðvitað ánægður með vægi íslenskra banda. Það verður mjög fróðlegt að sjá stemmninguna fyrir Íslendingunum í sólinni í sumar og þá sérstaklega hvernig OMAM hafa þróast með massívri spilamensku á árinu 2012.
Ég er t.d. spenntur að sjá Black Keys, Jack White, Florence + the Machine, The Shins, Justice, Bloc Party, M83, Tune-Yards, The Head & the Heart, The Tallest Man on Earth, Alabama Shakes, The Fun, The Walkmen, Band of Skulls, Neon Indian, The War on Drugs og ýmislegt fleira að íslensku böndunum ótöldum.







