
Áður óútgefið lag með hinni forfrægu þungarokkssveit Pantera er komið út, ásamt myndbandi, mörgum flösuþeytaranum til ómældrar ánægju. Lagið heiti því smekklega nafni „Piss“ en það átti upphaflega að vera á plötunni Vulgar Display of Power sem kom út fyrir um tuttugu árum.









