
Undirrituðum þykir það alltaf nokkuð tiltökumál þegar raftónlistarjötuninn Squarepusher sendir frá sér nýtt efni. Væntanleg er frá honum í maí platan Ufabulum og á henni mun vera meðfylgjandi lag sem ber heitið „Dark Steering“.
Ljóst er að kappinn er búinn að uppfæra aðeins hjá sér sándið og kominn með svaka ljósasjóv (sem minnir reyndar svoldið á Daft Punk) og ef eitthvað er að marka það sem fyrir augu ber hér að neðan eiga raftónlistarunnendur sannarlega von á góðu.










