• facebook
  • soundcloud
  • twitter
  • youtube
  • mail

Klassart með nýtt lag

  • Birt: 17/05/2012
  • Höfundur:
  • Skoðanir: 0

Systkynasveitin Klassart hefur ekki setið auðum höndum síðan að þeirra önnur breiðskífa Bréf frá París kom út árið 2010. Ekki hefur mikið farið fyrir sveitinni síðasta misserið en þar á undan var varla friður fyrir henni enda var „Gamli grafreiturinn“ líklega eitt vinsælasta lag ársins 2010.

Nú upp á síðkastið hafa safnast mörg ný lög í sarpinn og leggur hljómsveitin drög að næstu plötu. Eftir tvær plötur í rólegri kantinum vendur hljómsveitin kvæði sínu í kross eins og heyrist í fyrsta laginu sem almúgurinn fær að heyra, „Smástirni“.

Lagið er diskó/eurovision ástarsaga sem gerist í geimnum og fæst það í vefverslunum Tónlist.is og gogoyoko.