Synthadelia Records kynnir nýja rafræna EP útgáfu með Enkídú sem er annað sjálf Þórðar Hermannssonar. Platan heitir Love Is What Makes This World Go Around og er 4 laga electro plata. Platan er tilraunakennd blanda af elektró með diskó ívafi þar sem Þórður leikur sér að töktum og niðurskornum hljóðbútum og blandar þeim saman á skemmtilegan hátt.
Plötuna má nálgast á iTunes, Tónlist.is og gogoyoko.








