
Ljúflingurinn Ryan, betur þekktur sem Low Roar, mun spila í 12 Tónum á morgun klukkan 17.30. Ef þú ert á vappinu í góðveðrinu niðrí bæ á morgun þá gerir þú örugglega margt vitlausara en að reka inn nefið og heyra fagra tóna eins og þá sem fylgja hér með.









