
Listamaðurinn Ummi Guðjónsson sem sendi frá sér smáskífuna „Bergmálið“ fyrr á árinu sendir nú frá sér nýja smáskífu sem ber nafnið „Sumarið er komið aftur“ og er hún önnur smáskífan af væntanlegri breiðskífu Umma sem koma mun út síðar á þessu ári.
Tónlistarmenn sem lögðu hönd á plóg við upptökur smáskífunar, ásamt Umma sem syngur og spilar á gítar, munnhörpu og ukulele eru: Íris Birgisdóttir – söngur, Kåre Jonesen – bassi, Kristoffer Jul Reenberg – orgel, Snorri Sigurðarson – trompet og Ritvélastjórinn Jónas Sigurðsson sem spilar á trommur og gítar. Um hljóðblöndun sá Hafþór Karlsson.










