
Í dag kemur út á Íslandi fyrsta lag Elízu Newman af þriðju sóló plötu hennar sem hún vinnur að núna í London og áætlar að komi út í ágúst. Verður þessi plata frábrugðin fyrri sóló plötum hennar, á þann hátt að hún verður allfarið á Íslensku.
Stjörnuryk er fyrsta lagið til að fara í spilun og hefur það fengið frábærar móttökur bæði á Bylgjunni og á Rás 2 þar sem lagið skaust upp í 9.sæti vinsældarlistans þessa vikuna..Lagið er samið af Elízu og er Gísli Kristjánsson upptökustjóri, en hann stjórnaði líka upptökum á síðustu sóló plötu Elízu, Pie in the Sky.







